Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hv. formanni utanrmn. Alþingis að bregðast við óskum mínum um að gera grein fyrir sjónarmiðum sínum. Það er vissulega rétt sem kemur fram í máli hans að við í Vinstri hreyfingunni -- grænu framboði vorum andvíg hernaði NATO á Balkanskaga. Andstaða okkar gegn NATO og hernaðinum þar mótar hins vegar ekki afstöðu okkar í þessu máli. Við erum ekki að berjast gegn einhverju með þessari þáltill. heldur í þágu mannréttinda, í þágu umhverfisverndar og í þágu friðar. Við gerum grein fyrir því í grg. með þáltill. hvernig við viljum að þar verði staðið að verki. Það tókst, sagði hv. þm., að ná árangri á Balkanskaga. Það er rétt, það tókst að tryggja þar hagsmuni sem NATO vildi verja. En því miður tókst ekki og hefur enn ekki tekist, og við viljum að sjálfsögðu breyta því, að tryggja þar full mannréttindi. Ekki hefur tekist að tryggja náttúruna, umhverfisvernd og út á það gengur tillaga okkar fyrst og fremst.