Þórunn Sveinbjarnardóttir:
Herra forseti. Tillagan sem hér er til umfjöllunar um stofnun Snæfellsþjóðgarðs er allrar athygli verð og mun ég gera mitt til þess að hún fái ítarlega og faglega umfjöllun í umhvn. hins háa Alþingis. Tillagan er um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls, þjóðgarðs sem taki til Snæfells og öræfanna umhverfis að meðtöldum Eyjabökkum og Jökulsá í Fljótsdal að mörkum heimalanda jarða í Norðurdal, eins og það er orðað í þáltill.
Herra forseti. Tillagan ber vott um framtíðarsýn sem dugar. Hún ber vott um virðingu fyrir fólki og náttúrunni. Þetta er góð tillaga, herra forseti.