Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Það er eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, það eru ýmsar hliðar á þessu máli eins og öllum skattamálum og eðlilegt að sjálfsögðu að þingnefndin fari yfir þetta með öll tiltæk gögn sem ríkisskattstjóraembættið kann yfir að ráða í sambandi við málið.
En eigi að síður er rétt að hafa í huga að þetta er að sjálfsögðu mjög afmörkuð breyting. Hún nær eingöngu til þeirra sem í dag geta hagnýtt sér að hægt er að flytja 80% persónuafsláttarins á milli maka. Hún nær að sjálfsögðu ekki til annarra. En hún er til hagsbóta fyrir þá sem það gera og það er fólk á öllum aldri, upp og niður allan tekjustigann.
Það er rétt að þar í hópi eru ekki einstæðir foreldrar en þar er hins vegar til að mynda töluverður fjöldi karlmanna sem kominn er yfir sjötugt og jafnvel yfir áttrætt vegna þess að þeir væntanlega geta flutt persónuafslátt sinn yfir til maka sem er enn þá á vinnumarkaðnum. Málið er auðvitað þess eðlis. Og það er rétt að hafa í huga að þannig er það.
Spurt var hvort ekki yrðu fleiri sem mundu hagnýta sér þetta ef þetta kemst til framkvæmda. Það vitum við náttúrlega ekki en þeim hefur fækkað á undanförnum árum vegna þess að atvinnuþátttakan er orðin meiri í efnahagslífinu. Fleira fólk er úti á vinnumarkaðnum en áður var. Þess vegna er þessi aðgerð ódýrari í dag en hún var fyrir nokkrum árum þegar hún hefði kostað helmingi meira.
Ég veit að hv. þm. Margrét Frímannsdóttir gerir miklar kröfur til ríkisstjórnarinnar. En mér finnst dálítið til of mikils mælst að ætlast til að hún sé búin að framkvæma allan stjórnarsáttmála sinn fimm mánuðum eftir kosningar.