Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Hæstv. forsrh. hefur gert grein fyrir því að sú skýrsla sem Alþingi kallaði eftir 1998 og átti að vera tilbúin á vorþingi 1999 sé ekki tilbúin. Hæstv. forsrh. hefur fært fram rök fyrir því og það er ljóst af máli hæstv. forsrh. að vinna nefndarinnar sem skipuð var er vel á veg komin og ég samþykki fullkomlega rök ráðherrans að efni þessarar þáltill. er mjög viðamikið þannig að það getur auðvitað tekið tímann að vinna hana.
Ég tel mikilvægt að þessi vinna sé í gangi og henni ljúki senn. Það er mjög mikilvægt að fá fram slíkar reglur og ný vinnubrögð raunverulega í stjórnsýslunni sem þáltill. kallar eftir og ég vænti þess að því verði fylgt fast eftir af hæstv. forsrh. að skýrslan verði lögð sem fyrst fyrir þingið eins og þáltill. kveður á um.