Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Ég vil einungis ítreka að við endurskoðun skipulags- og byggingarlaga var ákveðið að hverfa frá því að endurskoða lögin um mat á umhverfisáhrifum þar sem menn vildu sjá hvernig þau virkuðu í reynd. Nú er hins vegar búið að vinna í því máli um nokkurn tíma. Það er rétt hjá hv. fyrirspyrjanda, Kolbrúnu Halldórsdóttur. En við höfum ekki klárað það í umhvrn. Við erum enn að skoða það og enn að vinna það, erum enn að fá inn umsagnir frá aðilum sem lögin munu taka tillit til.
Ég ítreka það að von er á þessu frv. þegar við höfum farið yfir það endanlega í umhvrn. Það er stefnt að því að leggja það fram á næstu vikum.