Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Mér er tjáð að stjórnarskrá Sovétríkjanna hafi verið ein fegursta stjórnarskrá heimsins. (Gripið fram í: Nú.) Mér er tjáð það. En það var ekki farið eftir henni, það var vandamálið. Og siðareglur sem á að þvinga ofan í einhvern skúrk sem ætlar ekki að fara eftir þeim, þær eru verri en ekki. Þær eru skálkaskjól. Hann mun segja: Ég er hérna með glerfínar siðareglur, ég er góður. Hann verður ekki góður fyrir það. Fyrirtæki verða eingöngu góð í þeim skilningi sem ég talaði um ef þau sjá nauðsyn á því að vera góð, þ.e. ef þau sjá það sem verðmæti í rekstri sínum að hafa siðareglur og sjá til þess að farið sé eftir þeim, þá eru siðareglur góðar. Þess vegna tel ég að siðareglur ofan frá séu slæmar. Þær geta meira að segja verið skálkaskjól. Það er miklu betra að láta manninn finna það að hann eigi að segja satt heldur en skipa honum að segja satt og að hann ljúgi þegar hann lofar því.