Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Í ljósi þess sem hv. þm. sagði er kannski spurning um að breyta þáltill. þannig að hún hljóði á þann veg að viðskrh. beiti sér fyrir því að umræða verði um viðskiptasiðferði og jafnvel geri samning við einhvern prófessor í heimspeki við Siðferðisstofnun háskólans um að finna út hvernig slík markmið gætu litið út. Það væri kannski nær og ég held að við séum ekkert á öndverðum meiði í því.
En það að skipa fyrirtækjum að setja sér siðareglur hvort sem þau vilja eða ekki tel ég vera af hinu slæma og í raun gefa þeim skálkaskjól en ekki stuðla að betra siðferði.