Samkeppnislög

Fimmtudaginn 21. október 1999, kl. 15:57:09 (882)

1999-10-21 15:57:09# 125. lþ. 15.3 fundur 90. mál: #A samkeppnislög# (bannregla, markaðsráðandi staða, frestir o.fl.) frv., HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 125. lþ.

[15:57]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Eins og ég sagði hef ég dæmi um það. Það er úrskurður má ég segja frekar en tilmæli, í þessu efnisatriði skiptir það ekki máli, þar sem fjallað var um málefni Landssímans og dregin til baka af embættismönnum Samkeppnisstofnunar án þess að það yrði borið undir samkeppnisráð.