Flm. (Margrét Frímannsdóttir) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég er sammála því að það hafi verið skynsamlegt spor að sameina bankaeftirlit Seðlabankans og Vátryggingaeftirlitið undir einn hatt og fara þá leið sem farin var þegar lögin um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi voru samþykkt. En hins vegar er alveg ljóst að þarna vantar inn heimildir bæði til að ná í upplýsingar og eins til að leggja á dagsektir þegar menn t.d. vanrækja tilkynningarskyldu eins og gerst hefur. Samfylkingin telur að nauðsynlegt sé að fjármálamarkaðurinn fái að þróast á grundvelli skýrra leikreglna þar sem hlutverk ríkisins er fyrst og fremst eftirlitshlutverk og að eftir gildandi leikreglum sé farið. Þannig megi koma í veg fyrir fákeppni og einokun. Við höfum ekki trú á því að leiðin sé sú að stjórnvöld eigi hverju sinni að ákveða hverjir eiga að fá að kaupa, hvenær og hversu mikið, heldur hitt að leikreglurnar séu skýrar og haft sé eftirlit með því að þeim sé framfylgt.
Í þeim anda eru þau þrjú þingmál sem við höfum mælt fyrir í dag. Þetta er niðurstaða sem við komumst að eftir mikla vinnu og ég vil lýsa sérstakri ánægju minni með að hæstv. ráðherra hefur setið með okkur í umræðum í dag og tekið til máls og farið yfir þetta á málefnalegan hátt. Við eigum því ekki að venjast af öllum hæstv. ráðherrum.