Byggðakvóti

Mánudaginn 01. nóvember 1999, kl. 15:12:09 (902)

1999-11-01 15:12:09# 125. lþ. 16.1 fundur 94#B byggðakvóti# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 125. lþ.

[15:12]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég veit ekki annað en stjórn Byggðastofnunar hafi verið samhljóða í öllum ákvörðunum sínum um hvernig skyldi haldið á þessu máli og þar hafi ekki verið neinn ágreiningur milli pólitískra flokka í þessu mjög svo vandasama máli. Ég tel því ekki ástæðu fyrir mig né aðra að hafa þau áform uppi að þeim vinnureglum eigi að breyta og ég hef ekki sannfæringu fyrir því að sú aðferð sem hv. þm. er að tala fyrir sé endilega sú besta.