Umgengni barna við báða foreldra

Mánudaginn 01. nóvember 1999, kl. 15:31:31 (917)

1999-11-01 15:31:31# 125. lþ. 16.1 fundur 97#B umgengni barna við báða foreldra# (óundirbúin fsp.), ÁRJ
[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 125. lþ.

[15:31]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og fagna því að þessu tilraunaverkefni verði fylgt eftir með frv. ef ástæða þykir til. Ég efast ekki um að ástæða þyki til vegna þess að eins og hæstv. ráðherra kom inn á hefur þetta reynst vel á Norðurlöndunum. Í Noregi, þar sem þetta er skylda, hefur sýnt sig að ágreiningsefnum varðandi bæði umgengni og forsjá barna þeirra foreldra sem hafa farið í slíka skilnaðarráðgjöf hefur fækkað mjög og mig minnir að það sama hafi verið uppi á teningnum í Danmörku.