Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Þetta er mjög óljóst svar. Ég óska eftir að hæstv. ráðherra veiti Alþingi skýrt svar við þessari fyrirspurn.
Reynslan af einkavæðingu og einkaframkvæmd innan almannaþjónustunnar liggur fyrir. Hún liggur fyrir í Bretlandi og í öðrum ríkjum þar sem farið hefur verið inn á þá braut. Markmið ríkisstjórnarinnar eru líka ljós. Það kemur fram í bæklingi sem hún sendi frá sér ekki alls fyrir löngu um einkaframkvæmd. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Leggja ber áherslu á að sem stærstur hluti tekna rekstraraðila sé fenginn með notendagjöldum.``
Hvað þýðir þetta? Hvað þýðir þetta í skólakerfinu? Þetta þýðir skólagjöld og í heilbrigðiskerfinu þýðir þetta sjúklingagjöld. Þess vegna verður hæstv. ráðherra að svara þinginu skýrt. Á að gefa pólitískt leyfi til þess að bjóða út grunnskólann og bjóða út sjúkrahúsin? Við viljum fá skýr svör.