Útboð á rekstri grunnskóla í Hafnarfirði

Mánudaginn 01. nóvember 1999, kl. 15:42:48 (925)

1999-11-01 15:42:48# 125. lþ. 16.1 fundur 99#B útboð á rekstri grunnskóla í Hafnarfirði# (óundirbúin fsp.), menntmrh.
[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 125. lþ.

[15:42]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Unnið er að þessu máli á vegum Hafnarfjarðarbæjar og þegar erindið berst til ráðuneytisins verður tekin afstaða til þess. Eins og ég sagði er heimild í grunnskólalögunum fyrir menntmrh. til að heimila starfsemi grunnskóla með öðrum hætti en gert er ráð fyrir í almennum ákvæðum laganna og á grundvelli þess heimildarákvæðis get ég brugðist við því erindi.