Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég ber fulla virðingu fyrir mismunandi skoðunum innan flokka. Hins vegar liggur það fyrir að ef Samfylkingin fær utanrrh. í ríkisstjórn Íslands í framtíðinni, sem ég vænti að flokkurinn stefni að, þá er nauðsynlegt fyrir þann utanrrh. að fá í veganesti frá sínum flokki hvernig hann eigi að standa að þessum málum. Hann verður að hafa hugmynd um hvort hann eigi t.d. að segja þjóðina úr NATO eða lýsa því yfir að vera áfram í NATO. (GÁS: ... Kristinn H. Gunnarsson.) Ég held að það sé grundvallaratriði.
Það liggur alveg ljóst fyrir hver afstaða Framsfl. er í þessum málum og hefur alltaf verið skýrt. Það var skýrt hver stefna Alþfl. var í þessum málum. Auðvitað veldur þetta ákveðnum tímabundnum vandamálum innan Samfylkingarinnar sem ég hef fullan skilning á meðan verið er að hrista liðið saman en að lokum þarf að koma einhver ákveðin niðurstaða.
Ég vildi taka það skýrt fram, út af því sem hv. þm. Mörður Árnason sagði um þyrlubjörgunarsveit á Keflavíkurflugvelli, að ég sagði ekki að það væri þess vegna. Ég sagði að hún mundi þá fylgja og það er einföld staðreynd. Ég lagði áherslu á nauðsyn þess að hér væru flugvélar. Það má vel vera að hv. þm. sé því ósammála að hér sé ákveðinn varnarviðbúnaður á Íslandi. Ég ætla ekki að fara út í þá umræðu en það er mín skoðun. Það hefur ekkert að gera með þyrlubjörgunarsveitina og sem betur fer erum við ekki jafnháðir henni og við áður vorum vegna þess að við höfum keypt okkar eigin þyrlu sem hefur létt mjög á björgunarsveitinni á Keflavíkurflugvelli. Við erum ekki eins upp á hana komnir og þar af leiðandi hafa þeir getað sparað verulegan kostnað og ég tel það rétta stefnu.