Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):
Herra forseti. Mér finnst ummæli hv. þm. benda til þess að hún átti sig ekki nákvæmlega á því hvernig að þessum málum hefur verið staðið. Að láta í veðri vaka að til hafi verið kallaðir menn sem hafi lélega þekkingu á innviðum skólastarfs til þess að takast á við viðfangsefni í grunnskólum eftir að þessar upplýsingar lágu fyrir, er mjög ósanngjarnt. Það hafa margir góðir sérfræðingar á vegum bæði Kennaraháskóla Íslands og einnig Háskólans á Akureyri og á vegum annarra stofnana sem sinna þjónustu við skólakerfið komið að því að meta skólastarf, bent á það sem betur má fara og skrifað skýrslur og síðan hafa skólarnir brugðist við. Sjálfur hef ég heimsótt nokkra slíka grunnskóla og það er með ólíkindum að kynnast þeim góða starfsanda sem þar ríkir og þeim metnaði sem þar ríkir og þakklæti fólks sem þar starfar í garð þeirra manna og sérfræðinga sem hafa verið kallaðir til. Að láta í veðri vaka að vanhæfir menn hafi að þessu komið er mjög ósanngjarnt og það er ekki hægt að láta því ómótmælt úr þessum ræðustóli. Það er mikill metnaður í skólakerfinu. Það er mikill metnaður hjá sveitarfélögunum. Þessar upplýsingar hafa gefið þeim nýjar vísbendingar um stöðu þeirra. Þau hafa nýtt sér þessi tækifæri. Þau hafa kallað til sérfræðinga og það hefur mikið verk unnist á þessu sviði.
Það verður haldið áfram á þessari braut. Nú liggur fyrir betri grunnur að upplýsingum. Nú verður farið af stað með nýjar rannsóknir. En að gera lítið úr því starfi sem unnið hefur verið og láta í veðri vaka að tíminn hafi verið illa nýttur og starfskraftar eða tími skólabarna og kennara, það er algjörlega rangt og það er ekki hægt að láta hjá líða að mótmæla slíkum ummælum um það mikla starf sem unnið hefur verið í grunnskólanum á síðustu árum.