Jónas Hallgrímsson:
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. fyrirspyrjanda Kristjáni L. Möller áhuga hans á málinu bæði fyrr og síðar. Einnig þakka ég hæstv. samgrh. svörin. Ég vek þó athygli á því að þau gögn sem verið er að vinna ættu að liggja fyrir bæði frá tíð hæstv. samgrh. Matthíasar Á. Mathiesens og hæstv. samgrh. Steingríms Sigfússonar. Þannig ætti ekki að þurfa mikinn tíma til þess að komast að niðurstöðu um meginatriðin.
Mér vitanlega er enginn stórisannleikur kominn fram í málinu. Og af því að hér hefur verið nefnt eitt byggðarlag sem mér þykir meira en lítið vænt um, þá vil ég taka fram að á Austfjörðum eru líka samgönguerfiðleikar. Ég nefni þar Vopnafjörð, Seyðisfjörð, Neskaupstað og Fáskrúðsfjörð. Við skulum heldur ekki gleyma þeim samþykktum sem liggja fyrir. Ég þakka fyrir þessa umræðu.