Langtímaáætlun í jarðgangagerð

Miðvikudaginn 03. nóvember 1999, kl. 14:45:55 (1068)

1999-11-03 14:45:55# 125. lþ. 18.5 fundur 61. mál: #A langtímaáætlun í jarðgangagerð# fsp. (til munnl.) frá samgrh., SÞ
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 125. lþ.

[14:45]

Sturla D. Þorsteinsson:

Herra forseti. Mig langar til að taka undir það sem hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir sagði áðan um að þessi mál verði að skoða í heild sinni við endurskoðun vegáætlunar í vetur. Í þessu sambandi get ég ekki misst af því tækifæri að minna á að í Reykjaneskjördæmi, sem ég kem úr, eru stór verkefni fram undan, þ.e. breikkun Reykjanesbrautar. Ég ítreka það. Ég vil ekki missa af þessu tækifæri til að minna á þetta.