Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Þeir hæstv. fjmrh. hafa staðið sig í stykkinu að því leyti að þeir hafa komið á heilmiklum breytingum í stjórnun á stofnunum. (ÖS: Hver er ábyrgur fyrir þessu sukki sem þú ert að tala um?) Ég er að tala um að þetta er landlægur mjög gamall vandi sem verið er að leysa. Menn eru að takast á við hann og ræða mín var áskorun til hæstv. fjmrh. um að taka málin sérstaklega föstum tökum. Ég er ekki að ásaka einn eða neinn. Ég ásaka heldur ekki stjórnir stofnananna því að þær lifa að sjálfsögðu í þessu umhverfi. Þessu þarf að breyta og þetta er að breytast. Það er verið að gera samninga við stofnanir, sérstaklega í menntakerfinu, sem ég tel af hinu góða. Þar er ábyrgðin raunveruleg. Ég held að menn séu að vinna gott starf í þessu. Ræða mín var hvatning til hæstv. ráðherra og annarra hæstv. ráðherra til að vinna enn betur til að leysa þennan vanda.