Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Ég tók eftir því að hv. 1. þm. Vestf. sagði að minnst væri á Póst- og fjarskiptastofnun í grg. með frv. En það er ekki einungis minnst á þá stofnun í grg. heldur kemur nafn Póst- og fjarskiptastofnunar fram í öllum þeim greinum sem mér hefur unnist tími til að lesa það sem af er, og ég var kominn aftur að um 20. gr. Ég held að nafn Póst- og fjarskiptastofnunar vanti í tvær eða þrjár greinar af þeim sem ég var búinn að lesa yfir. Það hlýtur að þurfa að hafa til hliðsjónar hvaða reglur gilda um þessa Póst- og fjarskiptastofnun ef menn eiga að geta talað af einhverju viti um málið.
Þannig að rökin fyrir því að frv. um þá stofnun liggi fyrir þegar menn ræða þetta hljóta að vera öllum mönnum augljós. Mér finnst satt að segja mikið liggja á þegar taka þarf mál til umræðu með þeim hætti sem hér er gert án þess að bráðnauðsynleg gögn, eins og þessi hljóta að vera í þeirri umræðu, liggi fyrir. Ég tek þess vegna undir þá gagnrýni sem hér hefur komið fram.
Ég tek einnig undir það sem hv. þm. Lúðvík Bergvinsson sagði, að auðvitað þarf formaður samgn. að vera til staðar við umræðuna. Og ég held að ágætt væri að hæstv. forseti gerði ráðstafanir í tíma til að sá ágæti maður gæti verið hér og tekið þátt í umræðunni --- en hann hefur eins og allir vita mikið að gera.