Fjarskipti

Fimmtudaginn 11. nóvember 1999, kl. 11:45:55 (1255)

1999-11-11 11:45:55# 125. lþ. 23.6 fundur 122. mál: #A fjarskipti# (heildarlög) frv. 107/1999, HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 125. lþ.

[11:45]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Það fór ekki fram hjá neinum að hv. þm. vék þrásinnis að embættisfærslu minni sem samgrh. og afskiptum mínum af Samkeppnisstofnun og að ég hefði tregðast við að verða við úrskurðum Samkeppnisstofnunar. Mig langar til að spyrja hv. þm. hvað hann hafi sérstaklega í huga í þessu sambandi.