Árni Gunnarsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég fagna því að hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir styður hugmyndir um barnakort og ég er sannfærður um að þessi hugmynd eigi eftir að verða að veruleika og nýtast vel. En ég tel að hún oftúlki orð Halldórs Ásgrímssonar, formanns Framsfl. Ég hygg að hann hafi aldrei orðað það svo að þetta ætti að verða skiptimynt í kjarasamningum. Hins vegar er það alveg rétt að fram undan eru kjarasamningar og það er rétt að taka þessi mál upp sem allra fyrst.
Ég vil leggja á það áherslu, af því að hv. þm. sagði að ræða mín áðan hefði verið máttlaus, að heildarendurskoðun á tekjuskattskerfinu er nauðsynleg fyrst og fremst vegna þess að það eru breyttar forsendur. Það deilir enginn um að kaupmáttur hefur aukist verulega í þjóðfélaginu og við því þarf að bregðast. Ég tel að það tekjuskattskerfi sem við búum við í dag þjóni hvorki hlutverki sínu sem fjáröflunarkerfi né heldur sem réttlátt jöfnunarkerfi. Þess vegna þarf að leggja í þá vinnu. En barnakortin ein og sér geta verið ágætisbyrjun og þurfa ekki að tengjast heildarendurskoðun á skattkerfinu sem menn þurfa, að mínu viti, að taka sér góðan tíma í að vinna.