Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst full ástæða til að þakka hv. 3. þm. Norðurl. v., Kristjáni L. Möller, fyrir þá sýn sem hann dregur upp í þessu máli og kom kannski ekki nægilega fram fyrr við þessa umræðu, þ.e. hvaða áhrif tillagan getur haft á landsbyggðarfólk. Það er vissulega rétt sem hv. þm. segir að það vegur þungt hjá mörgum fjölskyldum á landsbyggðinni að hafa þurft að taka sig upp til þess að leita læknisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Því er það alveg ljóst að þessi tillaga um að fjölga veikindadögum og auka rétt foreldra veikra barna mun hafa veruleg jákvæð áhrif fyrir landsbyggðarfólk. Það er örugglega alveg rétt að einmitt vegna þess hve veikindarétturinn hefur verið lítill þá hafa margar fjölskyldur gefist upp á búsetu úti á landi og þurft að flytjast hingað. Ég held að það eigi ekki síst við um fólk úti á landsbyggðinni sem á langveik börn. Þess vegna á sú hlið sem hv. þm. dregur upp um mikilvægi tillögunnar mjög mikið erindi í þá umræðu sem hér fer fram. Þetta er ekki nægilegt vegna þess að kostnaður af ferðalögum hingað á höfuðborgarsvæðið og dvalarkostnaður er mjög mikill. Þó hv. þm. dragi upp tillögu sem fram kom í byggðanefnd forsrh. á sínum tíma til að létta undir með þessum fjölskyldum vegna kostnaðar landsbyggðarfólks vegna veikra barna sinna þá hef ég enga trú á að neitt gerist í neinum mæli meðan þessi ríkisstjórn situr. Ég hef ekki trú á því að hv. þm., sem er mjög góður málsvari landsbyggðarfólks, hafi nokkra trú á því heldur.