Flm. (Ögmundur Jónasson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að taka það fram að ég geri greinarmun á happdrættum. Ég set þau ekki öll undir sama hatt. Það er alveg rétt að stundum getur verið erfitt að draga markalínur. En ég held að flestum sem á annað borð gagnrýna þessi mál beri saman um að happdrættisvélar, ekki síst þær sem eru samtengdar þannig að miklir fjármunir geta áskotnast þeim sem er heppinn, eru það sem flestir flokka undir spilavíti. Uppistaðan í spilavítunum í Las Vegas eru nákvæmlega svona kassar.
Það sem mér fannst jákvætt í máli hv. þm. Valgerðar Sverrisdóttur, starfandi formanns allshn., var að hún sagði að þessir kassar orkuðu tvímælis. Ég vona að að baki þessum orðum búi sá ásetningur að taka alvarlega á þessum málum. Það er rétt, eins og fram kom í máli hv. þm. að þessi mál hafa verið til umfjöllunar í nefnd sem tók á öllum happdrættismálunum. Ég las úr þeirri álitsgerð en þar er einvörðungu talað um eftirlit, að herða þurfi eftirlitið. Ég tel að það þurfi að ganga miklu lengra, þetta valdi það mikilli ógæfu hjá fólki, hjá stórum hópi, að okkur beri að banna þessa starfsemi. Ég held að okkar þjóðfélag væri betur sett ef við gerðum það.