Lánasjóður landbúnaðarins

Föstudaginn 12. nóvember 1999, kl. 13:59:39 (1380)

1999-11-12 13:59:39# 125. lþ. 24.12 fundur 164. mál: #A Lánasjóður landbúnaðarins# (nýsköpunardeild) frv., Flm. ÁGunn
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 125. lþ.

[13:59]

Flm. (Árni Gunnarsson):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. fyrir góðar undirtektir við þetta frv. Það er raunar tilraun til að koma fram með nýjar lausnir í íslenskum landbúnaði og gefa ungu velmenntuðu og bjartsýnu fólki, sem fyllir raðir bænda nú um stundir og er að taka við, bjartari sýn á framtíðina. Jafnframt er þetta tilraun til að skapa sjálfbæra þróun í útflutningi.

Ég vona að vel takist til og endurtek þakkir mínar til hv. þm. sem hér hafa mælt með þessu frv. og vona að það hljóti ítarlega og góða umfjöllun í nefnd.