Umhverfismat á 220 kw. línu að Brennimel

Mánudaginn 15. nóvember 1999, kl. 15:11:43 (1390)

1999-11-15 15:11:43# 125. lþ. 25.1 fundur 140#B umhverfismat á 220 kw. línu að Brennimel# (óundirbúin fsp.), ÁSJ
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 125. lþ.

[15:11]

Árni Steinar Jóhannsson:

Virðulegi forseti. Ég vil upplýsa hæstv. iðnrh. um að mjög margir á svæðinu hafa einmitt áhyggjur af því að verið sé að vinna málið fram með þeim hætti að það verði gert eins og í fyrri verkefnum, að komið verði með fullbúnar tillögur og almenningi á svæðinu síðan sagt að það sé of seint að snúa við. Getur það verið tilfellið í þessu tilviki að hér eigi að koma með fullbúnar tillögur á sama hátt og gert hefur verið áður að benda hinum almenna borgara á svæðinu á að það sé of seint að gera athugasemdir?