Bergljót Halldórsdóttir:
Herra forseti. Fyrirhuguð er sala á Íslenska menntanetinu og Íslenska menntanetið er með vefsíðu sem inniheldur tengla við mennta- og menningarstofnanir í landinu. Einnig hefur menntanetið staðið fyrir námskeiði um tölvur og tölvunotun og kennsluaðferðir fyrir tölvu- og upplýsingatækni í skólum landsins.
Íslenska menntanetið á vélbúnað fyrir internetþjónustu og þjónustar flesta grunnskóla landsins en þó ekki alla. Ísafjarðarbær hefur t.d. gert þjónustusamning við tölvuþjónustuna Snerpu á Ísafirði og þjónustar hún skólana þar. Snerpa hefur þróað ýmsan hugbúnað á sviði internetsins og er m.a. að hanna síu sem varnar nemendum grunnskólanna að komast inn á klámsíður. Stöðugar framfarir eru á sviði tölvutækni og gagnaflutningar eru sífellt að verða hraðvirkari, auðveldari og ódýrari. Ég spyr hæstv. menntmrh. Björn Bjarnason: Hvað felst nákvæmlega í sölu á Íslenska menntanetinu?