Sala á Íslenska menntanetinu

Mánudaginn 15. nóvember 1999, kl. 15:15:19 (1393)

1999-11-15 15:15:19# 125. lþ. 25.1 fundur 141#B sala á Íslenska menntanetinu# (óundirbúin fsp.), BergH
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 125. lþ.

[15:15]

Bergljót Halldórsdóttir:

Herra forseti. Það sem ég var kannski líka að ýja að er hversu mikil verðmæti eru í raun falin í menntanetinu sem slíku með þeim framförum sem eiga sér stað í tölvuiðnaðinum, þ.e. hvort það sé þjónustuvefurinn eða viðskiptaaðilar sem verið er að bjóða eða hvort það sé tækjabúnaðurinn. Það er bara það sem ég ætlaði að fá fram.