Verðbætur á gjaldahlið vegamála árið 2000

Mánudaginn 15. nóvember 1999, kl. 15:27:04 (1404)

1999-11-15 15:27:04# 125. lþ. 25.1 fundur 143#B verðbætur á gjaldahlið vegamála árið 2000# (óundirbúin fsp.), JB
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 125. lþ.

[15:27]

Jón Bjarnason:

Herra forseti. Ef hæstv. fjmrh. hrapar ekki að þessu máli meira en ég þá verður þetta leiðrétt. Samkvæmt upplýsingum sem fulltrúar samgrn. gáfu á fundi hjá samgn. þá er það þeirra skoðun að þarna sé um mistök að ræða. Ég skil hæstv. ráðherra fjármála þannig að hann fari varlega í yfirlýsingar þangað til komið er til botns. En ég vona að þær leiði til farsællar niðurstöðu.