Reynslusveitarfélög

Mánudaginn 15. nóvember 1999, kl. 17:08:57 (1424)

1999-11-15 17:08:57# 125. lþ. 25.4 fundur 109. mál: #A reynslusveitarfélög# (gildistími o.fl.) frv. 114/1999, félmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 25. fundur, 125. lþ.

[17:08]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Árið 1994 voru sett lög á Alþingi um reynslusveitarfélög. Þau voru með sólarlagsákvæði og áttu að falla úr gildi 1. janúar 2000.

Markmið laganna var, sbr. 1. gr. þeirra, að gera sveitarfélögum kleift að gera tilraunir í þeim tilgangi að undirbúa breytingar á löggjöf um stjórnsýslu sveitarfélaga, framkvæmd verkefna þeirra, tekjustofna sveitarfélaga og verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Með tilraununum skyldi stefnt að aukinni sjálfsstjórn sveitarfélaga, betri aðlögun stjórnsýslu þeirra að staðbundnum aðstæðum, bættri þjónustu við íbúana og betri nýtingu fjármagns hins opinbera. Tilraunirnar máttu hvorki hafa í för með sér skerðingu á réttindum íbúanna né fela í sér auknar fjárhagslegar byrðar fyrir þá.

Þau sveitarfélög sem fengið hafa heimild til að gera tilraunir í samræmi við ákvæði laganna nefnast reynslusveitarfélög. Við val á reynslusveitarfélögum bar félagsmálaráðherra að gæta þess að þau væru sem fjölbreytilegust að stærð og gerð. Sveitarfélög sem sóttu um þátttöku í tengslum við sameiningu skyldu að öðru jöfnu hafa forgang. Þau sveitarfélög sem valin voru til þátttöku voru: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Reykjanesbær, Snæfellsbær, Borgarbyggð, Dalabyggð, Vesturbyggð, Akureyri, Neskaupstaður, Hornafjörður og Vestmannaeyjar.

Um áramótin 1998/1999 var ólokið 23 tilraunaverkefnum á vegum átta reynslusveitarfélaga. Fjögur reynslusveitarfélög af þeim tólf sem félagsmálaráðherra valdi árið 1994 höfðu þá hætt þátttöku þar sem þeim hafði ekki tekist að ná samkomulagi um tilraunaverkefni. Þau eru Borgarbyggð, Snæfellsbær, Vesturbyggð og Dalabyggð.

Félagsmálaráðuneytið hefur gert samning við óháð ráðgjafarfyrirtæki um að meta árangur af verkefnunum, jafnframt því að verkefnisstjórn reynslusveitarfélaga hefur hvatt reynslusveitarfélögin og hlutaðeigandi ráðuneyti til að leggja eigið mat á verkefnin og árangur þeirra.

Í frv. sem liggur hér fyrir á þskj. 117 er lagt til að gildistími laga um reynslusveitarfélög verði framlengdur um tvö ár, til 1. janúar árið 2002. Helgast sú tillaga m.a. af því að sum þeirra tilraunaverkefna sem nú standa yfir hófust seinna en ráð var fyrir gert og er fyrirsjáanlegt að ekki verði fengin af þeim nægileg reynsla áður en gildistíminn rennur út. Enn fremur telur verkefnisstjórn reynslusveitarfélaga heppilegt að í þeim tilvikum þar sem um er að ræða viðamikil verkefni og vilji reynslusveitarfélags stendur til að halda verkefnum áfram eftir 1. janúar árið 2000 verði ráðherra unnt að framlengja þau.

Ekki er gert ráð fyrir að öll þau reynslusveitarfélagaverkefni sem komist hafa á laggirnar verði framlengd. Þau verkefni sem til greina kemur að framlengja á grundvelli laga um reynslusveitarfélög eru á sviði málefna fatlaðra, öldrunarmála, heilsugæslu og enn fremur ýmsar stjórnsýslutilraunir. Hins vegar er lagt til í frv. að felldar verði brott heimildir ráðherra til að veita undanþágur frá ákvæðum laga varðandi húsnæðismál, vinnumarkaðsmál og byggingarmál. Varðandi tvo fyrrnefndu málaflokkana hafa verið sett ný lög sem gera það að verkum að verkefnisstjórn reynslusveitarfélaga telur ekki forsendur fyrir framlengingu verkefna, en varðandi byggingarmálin telur verkefnisstjórnin að nægileg reynsla sé komin á og hefur hún tekið upp viðræður við umhverfisráðuneytið um möguleika á lagabreytingum til samræmis við góða reynslu af þeim verkefnum.

Tilraunir á sviði stjórnsýslu og byggingarmála hafa gefið góðan árangur og hafa mörg sveitarfélög endurskipulagt stjórnsýslu sína almennt á grundvelli góðrar reynslu af tilraunaverkefnum. Enn fremur hefur verið góð reynsla af tilraun á yfirtöku sveitarfélaga á málefnum fatlaðra, sem falla vel að annarri félagsþjónustu sem sveitarfélögin veita.

Herra forseti. Ég ætla ekki að orðlengja þetta meira. Það er nauðsynlegt að þetta frv. hljóti afgreiðslu fyrir áramót. Eins og ég sagði áðan er sólarlagsákvæði í gildandi lögum. Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til hv. félmn. til athugunar.