Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 16:32:06 (1502)

1999-11-16 16:32:06# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[16:32]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Ég þarf enga eina mínútu. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon svaraði fyrir sig fyrr í umræðunni í dag. Ég tek undir það með hæstv. ráðherra að það er ekkert óeðlilegt að menn skipti um skoðun ef því er að skipta. Við höfum ekki skipt um skoðun í þessu máli. Við höfum mjög skýra stefnu. Ég gerði grein fyrir henni í máli mínu í dag. Ég gerði grein fyrir þeirri stefnu þegar þáltill. okkar var rædd í vor og við gerðum það einnig á síðasta kjörtímabili.