Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 16:34:56 (1505)

1999-11-16 16:34:56# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[16:34]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Ég fékk ekki svar við spurningu minni um tilfinningar Austfirðinga. Ég vil benda hv. þm. á að framkvæmdir eru hafnar. Þessi virkjun var sérstaklega undanþegin í lögum þegar þau voru sett á sínum tíma. Samkvæmt lögum er því heimilt að fara í framkvæmdir og má fara í framkvæmdir. Ef menn vildu fara stíft eftir lögunum mætti því byrja að grafa strax.