Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 17:05:22 (1516)

1999-11-16 17:05:22# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, RG (ber af sér sakir)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[17:05]

Rannveig Guðmundsdóttir:

Herra forseti. Ég skal ekki misnota það. Ég sætti mig ekki við það, herra forseti, að gefið sé til kynna að við, sem óskum eftir að farið sé að lögum um umhverfismat, séum ekki tilbúin að axla ábyrgð sem alþingismenn í málum okkar á Alþingi. Ef ríkisstjórnin vill ekki hafa umhverfismatið skal hún bara fara að þeirri stöðu og heimildum sem hún hefur samkvæmt því sem hún setur fram á 18 síðum í þessari þáltill. Það er verið að biðja okkur þingmenn að gera umhverfismat, um það er deilt og mér finnst það rangt.