Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Má ég þá líka spyrja: Hvað með erfiðleika annarra byggðarlaga og annarra landshluta? Verðum við þá ekki líka að réttlæta hvað sem er með byggðavandanum þar? Er það þá þannig að ef byggðavandinn brestur á okkur þá sé hann þess eðlis að öll önnur sjónarmið eigi að víkja til hliðar?
Varðandi þetta með tímann, hver hefur sýnt fram á það að við séum í þeirri nauðungarstöðu að við getum ekki tekið okkur tíma til að láta fara fram lögformlegt umhverfismat? Hefur Norsk Hydro gefið það út að þeir hverfi frá samstarfinu ef það verður gert? Það væri fróðlegt að vita það. Eru þeir sökudólgurinn sem ætlar að eiga innan við 20% í öllu heila batterínu? Að öðru leyti á þetta að verða íslensk framkvæmd. Höfum við þá ekki forræði á því máli? Nei, við skulum ekki láta setja okkur svona út í horn. Ástæðan er auðvitað sú að menn þora ekki í mat á umhverfisáhrifum af því að þeir eru hræddir við útkomuna úr því mati. Það á að þröngva þessu máli fram hvað sem tautar og raular í þeim efnum.