Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Þriðjudaginn 16. nóvember 1999, kl. 21:46:56 (1585)

1999-11-16 21:46:56# 125. lþ. 26.3 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 125. lþ.

[21:46]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Ég veit ekki hvað Félag leiðsögumanna hefði um þetta svar að segja. Ég tel að leiðsögumenn hafi sitthvað með ferðaþjónustu að gera. Ég hélt að starf þeirra snerist um að leiðbeina ferðamönnum. Ég hélt að Náttúruverndarráð hefði með náttúruvernd að gera líka. Þeir aðilar sem tengjast ferðaþjónustunni og náttúruvernd hafa tekið afdráttarlausa afstöðu í þessum málum. Þeir vilja að lögformlegt umhverfismat fari fram.