Hjálmar Jónsson (andsvar):
Herra forseti. Mér finnst hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon gleyma hagsmunum Austfirðinga og hafa þá svona aðeins úti á kantinum. Mig langar til að spyrja hann hvort honum þyki ekki vænt um Austfirðinga á Austurlandi eða vill hann endilega að þeir flytji þaðan hingað suður. Blómstrandi mannlíf mun ekki verða þar eins og í dag, það er á hraðri niðurleið, nema spyrnt sé við fótum. Einmitt það er verið að gera í þessu sambandi.
Fyrst hann nefndi að ég væri guðsmaður þá er eitt sem aldrei kemst í lögformlegt umhverfismat. Það eru eldgosin eða þær hræringar sem eiga sér stað og enginn getur við gert en samkvæmt sköpunarguðfræði, svo ég beiti því líka á hann, er heimurinn enn í sköpun og maðurinn er þátttakandi í því.