Beiðni um fundarhlé

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 13:53:11 (1616)

1999-11-17 13:53:11# 125. lþ. 27.93 fundur 156#B beiðni um fundarhlé# (um fundarstjórn), ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[13:53]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég vil að það komi fram að ég er ekki genginn í Frjálslynda flokkinn. Ég kem sem sjálfstæður þingmaður og legg fram sjálfstæða beiðni sem ég geri reyndar í nafni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs. Ég ítreka beiðni mína, ég óska eftir því að gert verði hlé á þingfundi og formenn þingflokka komi saman til þess að ræða stjórn þingsins.