Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Það er alveg hárrétt hjá hæstv. ráðherra, að það er ekki samhljómur í málflutningi mínum og í þeirri ályktun sem hann las upp frá Verkamannasambandi Íslands. Ég er ósammála henni og það voru án efa einhverjir á þinginu sem voru henni ósammála. En það sem ég sakna í andsvari hæstv. ráðherra er að hann skuli koma hér upp eftir þær fullyrðingar sem ég hef sett fram og upplýsingar sem ég hef reitt fram og gera enga tilraun til málefnalegrar umræðu. Hann reynir ekki að svara neinum rökum en hann ber samþykktir samtaka fyrir sig. Ég vona að hæstv. ráðherra komi upp aftur og svari þeim röksemdum sem ég setti fram en geri ekki það sem hann hefur reyndar alltaf gert í umræðunni, að reyna að bera einhverja aðra fyrir sig, að drepa málum á dreif.