Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 15:32:47 (1650)

1999-11-17 15:32:47# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, KLM (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[15:32]

Kristján L. Möller (andsvar):

Herra forseti. Ég held að það hafi komið skýrt fram í minni ræðu. Ég sagðist hlynntur byggingu álvers á Reyðarfirði. Ég lít á það sem lið í byggðaaðgerðum. Ég sagði líka að ég hefði verið andvígur byggingu álvers á höfuðborgarsvæðinu. Er þetta ekki nokkuð skýrt?