Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 18:36:43 (1675)

1999-11-17 18:36:43# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, EMS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[18:36]

Einar Már Sigurðarson (andsvar):

Herra forseti. Enn á ný kemur hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon og skýrir sjónarmið sín í þessu máli. Þar sem ég fékk ekki í gær nægilegar skýringar á því hvers vegna afstaða hans hefur breyst frá því 1990, bið ég hv. þm. enn að gera tilraun til þess að skýra fyrir mér hvaða breyting hafi orðið í byggðamálum frá því 1990 og til dagsins í dag. (Gripið fram í: 300.000 tonn.)