Ólafur Örn Haraldsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Almenningur getur komið skoðunum sínum á framfæri við umhvn. um þáltill. sem liggur þar fyrir um mat á umhverfisáhrifum eins og um öll önnur þingmál. Það þekkir hv. þm. og almenningi er það frjálst eins og allir hér vita.
Umhvn. mun vanda mjög meðferð þessa máls, kalla til marga sérfræðinga, hlusta á og meta rök þeirra og nýta þær umsagnir sem þegar hafa borist. Ég vil láta það koma fram að við munum vinna báðar þessar tillögur af fullum krafti. Vinna er þegar hafin við þáltill. og ég stefni að því að afgreiða báðar þessar þáltill. frá umhvn. núna fyrir jólin.