Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:31:28 (1700)

1999-11-17 19:31:28# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:31]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Vandinn er stór og margvíslegur. Vandinn liggur líka, eins og ég lýsti áðan, í byggðastefnunni. Vandinn liggur í framkvæmd þessarar þáltill. hér. Hvar sér hennar stoð í fjárlagafrv.? Vandinn liggur í að gera sér grein fyrir í hverju byggðastefna er fólgin. Þessi ríkisstjórn hefur farið með byggðamál í mörg ár. Hvað hefur henni orðið ágengt? Hve mikill hefur fólksflóttinn orðið?