Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:32:14 (1701)

1999-11-17 19:32:14# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:32]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég ætlaði að falla frá andsvari mínu þegar ég heyrði spurningu hæstv. iðnrh. En ég sé mig tilneydda til að endurtaka þá spurningu. Við henni kom ekki svar.

Ræðumaður velti fyrir sér hvort Austfirðingar hefðu verið spurðir að því hvað annað þeir gætu gert fyrir 60 milljarða. Hver á að reiða fram þá 60 milljarða? Það væri gott að fá svar við því við þessa umræðu.