Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:34:24 (1704)

1999-11-17 19:34:24# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:34]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég vil spyrja hv. þm.: Hvaða fjárfestar eru reiðubúnir að leggja fram þessa 60 milljarða nú? Getur hann nefnt einn undir þeirri arðsemiskröfu sem ... (Gripið fram í.) Er einhver sem vill nefna hver er reiðubúinn að leggja þann tékka á borðið? Svo er ekki. Arðsemismat liggur ekki fyrir. Þótt við gengjum eftir því núna, þá gæti enginn labbað inn um dyrnar á hinu háa Alþingi og sagt: Hér er tékkinn.