Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 19:43:27 (1714)

1999-11-17 19:43:27# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[19:43]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Vegna fyrirspurnar hv. þm. er því til að svara að samkvæmt þingsköpum eru lítil tök á að koma til móts við þessar frómu óskir hv. þm. Um þetta fyrirkomulag var samið. Þingsköp segja að menn geti talað tvisvar sinnum og þó hugsanlega verði nefnd nöfn einstakra þingmanna þegar á umræðuna líður þá verður illa við það ráðið. Því miður sér forseti fáar lausnir á vanda hv. þm.