Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Miðvikudaginn 17. nóvember 1999, kl. 22:32:41 (1747)

1999-11-17 22:32:41# 125. lþ. 27.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, ÖS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 27. fundur, 125. lþ.

[22:32]

Össur Skarphéðinsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Aðalatriði málsins eru einfaldlega þessi: Skipulagsmeðferðinni var lokið 1992 um þann part línunnar sem engar deilur voru um í sérstaklega skipaðri nefnd þar sem allir þingflokkar áttu fulltrúa. Það staðfesti ég. Það sem deilur voru um setti ég í umhverfismat samkvæmt lögunum. Svo einfalt er það nú.