Fyrirspyrjandi (Svanfríður Jónasdóttir):
Herra forseti. Ég hef lagt fram fyrirspurn til hæstv. menntmrh. um upplýsingatækni í skólum en tilefni þessarar fyrirspurnar var sú fyrirætlan hæstv. ráðherra að selja Íslenska menntanetið. Sú sala átti að fara fram í síðustu viku en þá átti að opna tilboðsgögn og menn bundu vonir við að einhverjir yrðu til að bjóða í netið en það varð ekki. Ég hef ekki heyrt að afstaða ráðherrans hvað varðar sölu á netinu hafi breyst þannig að ég held að full ástæða sé til þess að hann greini þingheimi frá þönkum sínum varðandi þetta efni.
Það er fróðlegt að velta því fyrir sér hvaða áhrif þessi sala, ef af henni verður, hefur fyrir íslenskt skólakerfi og kannski síðast en ekki síst hvað verið sé að selja. Ég held að það sé nokkuð ljóst að sá búnaður sem notaður hefur verið er lítils virði. Heitið ismennt.is er e.t.v. einhvers virði og á áttunda þúsund netföng geta verið einhvers virði fyrir þá sem vita til hvers þeir ætla að nota þau. Hugmyndafræðin sem notuð hefur verið er auðvitað einhvers virði. En hvert fer hún ef starfsfólk fylgir ekki með? Efni námskeiða og fleira þess háttar er líka einhvers virði en það er auðvitað sérþekking starfsfólksins á þjónustu við íslenska skólakerfið sem e.t.v. skiptir mestu máli.
Herra forseti. Íslenska menntanetið er afrakstur þróunarvinnu kennara, skólanna í landinu. Það er ekki bara þróunarstarf heldur hefur það líka verið ákveðið samfélag og þjónusta. Kennarar hafa getað rætt og þróað sín mál á netinu og fengið viðeigandi ráðgjöf auk þess sem umfangsmikil fjarkennsla Kennaraháskólans hefur hvílt á netinu.
Herra forseti. Mér skilst að engar sérstakar kröfur hafi verið gerðar til kaupenda samkvæmt útboðsgögnum og maður veltir því fyrir sér hvort Samband sveitarfélaga hafi áttað sig á því að hér gæti verið stigið það skref sem á eftir að mismuna sveitarfélögum og skólum hvað mest þegar kemur að nýtingu hinnar nýju tækni. Ég hef þess vegna lagt eftirfarandi spurningar fyrir hæstv. ráðherra:
1. Er það í samræmi við yfirlýstan vilja ráðherra að efla upplýsingatækni í skólum landsins að selja Menntanetið?
2. Hvernig hyggst ráðherra tryggja jafnan aðgang allra skóla að námskeiðum og upplýsingum og aðra þátttöku sem er mikilvæg ef skólar eiga að vera virkir í upplýsingabyltingunni?
3. Mun ráðuneytið greiða viðbótarkostnað skóla við tölvumál þegar þeir eru ekki lengur hluti af félagslegu umhverfi Menntanetsins?
Herra forseti. Við þessar spurningar hef ég ekki síst í huga yfirlýsingu sem nokkrir forráðamenn í fræðslumálum sendu frá sér í tilefni af hugsanlegri sölu á íslenska Menntanetinu þar sem þeir telja mjög mikilvægt að starfrækt sé skóla- og menntanet í landinu.