Kolbrún Halldórsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég nýti ál, ég viðurkenni það, eins og allir sem búa í vestrænu samfélagi. Ég tel það hins vegar ekki vera okkur til neinna málsbóta. Ég teldi viturlegra að við legðum okkar lóð á vogarskálarnar við að afskaffa álið og gerðum okkar til að efla rannsóknir á öðrum aðferðum við að búa til flugvélar og bíla. Ég bendi hv. þm., virðulegi forseti, á að það standa yfir tilraunir í heiminum með bíla og flugvélar úr plasti, gleri og alls kyns öðrum efnum en áli.
Ég geri það sem ég get til að breyta lífsstíl mínum. Ég vil endurtaka það sem ég sagði í ræðustól fyrir tveimur dögum og bendi hv. þm. Tómasi Inga Olrich á að hafa það í huga, ég sagði: Við verðum að þróa nýjan lífsstíl með nýjum framleiðsluaðferðum og neyslumynstri, lífsstíl sem gerður er til að endast. Virðulegi forseti, ég legg mig fram um að breyta lífsstíl mínum til hins betra.