Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 13:49:29 (1849)

1999-11-18 13:49:29# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[13:49]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. að sá sem hér stendur átti við virkjunarleyfið og nefndi sérstaklega að það hefði verið gefið út í apríl 1991. Það eru engar lagalegar hindranir fyrir því. Ég nefndi sérstaklega í ræðu minni að virkjunarleyfið hafi verið byggt á lagaákvæðum og á heimildum til samninga sem má rekja til ársins 1981.