Tómas Ingi Olrich (andsvar):
Herra forseti. Það má heita mjög sérkennilegt ef slíkt bráðabirgðaákvæði hefur verið samþykkt af þingheimi og menn hafa ekki gert sér grein fyrir því hvað það þýddi. Vegna þess að það kom ekki fram í þingræðum að ákvæðið ætti við eina virkjun frekar en aðrar sem leyfi er fyrir þá er ekki þar með sagt að menn hafi ekki áttað sig á þessu.
Ég verð nú að segja að ég held að þingmaðurinn geri frekar lítið úr nefndarmönnum sem sumir hverjir voru afskaplega vel upplýstir. Sumir þeirra hafa setið hér undir gagnrýni að vísu, eins og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson, en aldrei fyrir að vera ekki vel að sér eða vel pappírum búnir.