Framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun

Fimmtudaginn 18. nóvember 1999, kl. 13:54:21 (1854)

1999-11-18 13:54:21# 125. lþ. 29.1 fundur 186. mál: #A framhald framkvæmda við Fljótsdalsvirkjun# þál. 3/125, SvH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 29. fundur, 125. lþ.

[13:54]

Sverrir Hermannsson (andsvar):

Herra forseti. Ráðherra hefur leyfið. En hér er farið fram á að hið háa Alþingi lýsi yfir stuðningi við framkvæmdina. Það getum við ekki gert með neinu móti nema fullnægt sé því að umhverfismatið fari fram.

Afgreiðsla þessarar þáltill. mundi alls enga þýðingu hafa í þessu sambandi, aðeins upplýsa að handjárnin í stjórnarflokkunum hafi haldið öllum nema þá tveimur.